#

The Heritage Craft School

Markmið:

Fornverkaskólinn (e. The Heritage Craft School) er verkefni sem miðar að því að fræða og upplýsa
fólk um hefðbundna byggingalist sem mikilvæga leið til að varðveita þennan menningararf. Skólinn er rekinn af Byggðasafni Skagfirðinga sem varðveitir mörg torfhús. Helstu byggingarefnin í þessari byggingarhefð eru náttúruauðlindir úr nærumhverfinu, svo sem grjót og torf.


Þekking á gömlum byggingaraðferðum er forsenda þess að hægt sé að viðhalda torfhúsaarfi þjóðarinnar. Til að uppfylla markmið sín hefur Fornverkaskólinn frá árinu 2007 skipulagt námskeið og vinnustofur sem beinast aðallega að torf- og grjóthleðslu og timbursmíði, en heldur einnig námskeið í gluggasmíði í samstarfi við staðbundinn framhaldsskóla, vinnslu rekaviðar og vefnaði á vefstól í samstarfi við Byggðasafn Skagfirðinga.
 

Byggingariðngreinarnar sem eru kenndar og hafa varðveist hér á Íslandi voru einnig notaðar í öðrum löndum en þekkingin hefur glatast þar og því koma margir nemendur skólans erlendis frá til að sækja námskeið þeirra. Skólinn hefur þjálfað nærri 400 þátttakendur, bæði innlenda og erlenda, þar á meðal fagfólk í fræðum menningararfs og áhugafólk (Byggðasafn Skagfirðinga, á.á.).

Fornverkaskólinn hlaut viðurkenningu frá Minjastofnun Íslands fyrir framlag sitt til varðveislu íslenskrar byggingar hefðar. Nokkrir sérfræðingar í menningararfi hafa komið erlendis frá til að sækja námskeið skólans. Þetta sýnir að skólinn hefur alþjóðleg áhrif á varðveislu menningararfs (Minjastofnun Íslands, 2023).

 

Vefsíða: https://www.glaumbaer.is/en/the-heritage-craft-school-1/the-heritage-craft-school
Hafa samband: byggdasafn@skagafjordur.is

 



The European Commission's support for the production of this publication does not constitute an endorsement of the contents, which reflect the views only of the authors, and the Commission cannot be held responsible for any use which may be made of the information contained therein.

Legal description – Creative Commons licensing: The materials published on the NICHE 2 project website are classified as Open Educational Resources' (OER) and can be freely (without permission of their creators): downloaded, used, reused, copied, adapted, and shared by users, with information about the source of their origin.