01
LEIÐBEININGAR
NICHE 2 Leiðbeiningar um eflingu óáþreifanlegs menningararfs er hagnýt verkfærakista fyrir fræðsluaðila í starfsmennt, kennara og fagfólk sem vinnur með óáþreifanlegan menningararf. Verkfærakistan inniheldur upplýsingar um þau skref sem þarf að taka til að endurtaka góðar starfsvenjur NICHE2, innleiða námskrána og stuðla að sjálfbærri frumkvöðlastarfsemi með óáþreifanlegan menningararf.
NICHE 2 Leiðbeiningar um eflingu óáþreifanlegs menningararfs munu:
Hjálpa fagfólki sem vinnur með óáþreifanlegan menningararf að leiða græna og stafræna umbreytingu
Færa fræðsluaðilum í starfsmenntun verkfæri til að flétta sjálfbærni inn í kennslu sína
Gefa stefnumótendum skýrar ráðleggingar sem byggja á reynslu fenginni í verkefninu
Kynna óáþreifanlegan menningararf sem farveg fyrir gildi ESB —menningarlega fjölbreytni, ábyrgð í umhverfismálum, inngildingu, þátttöku og samheldni
Undirbúa stofnun samevrópsks tengslanets á sviði óáþreifanlegs menningararfs sem byggir á samstarfi, beitir sér fyrir nýungum og horfir til framtíðar