#

FRÉTTIR

NICHE 2 -Nurturing Intangible Cultural Heritage for Entrepreneurship:

2024-12-04

#

Þekkingarnet Þingeyinga tók þátt í rafrænum upphafsfundi

Þekkingarnet Þingeyinga tók þátt í upphafsfundi NICHE 2 - Nurturing Intangible Cultural Heritage for Entrepreneurship, sem er nýtt Erasmus+ samstarfsverkefni á sviði starfsmenntunar (KA220-VET) 
Þetta nýja verkefni byggir á NICHE (2020-2022) sem hafði það markmið að efla frumkvöðlastarfsemi á sviði óáþreifanlegs menningararfs. Verkefnið fékk viðurkenninguna “bestu starfsvenjur” og náði mikilli útbreiðslu, 143.150 einstakar heimsóknir á heimsíðu verkefnisins (nicheproject.eu) og 5.200 manns fengu þjálfun á netinu. 
Markmið NICHE 2 er að þróa og veita þjálfun fyrir einstaklinga sem nýta sér óáþreifanlegan menningararf í sínu starfi til að stuðla að sjálfbærum vexti þessarar starfsemi. Markmið verkefnisins er að auka fagmennsku með því að styðja við þá færni sem hefur verið skilgreind í Evrópska hæfnirammanum um sjálfbærni sem og stafræna færni.
Í NICHE 2 eru 7 samstarfsaðila frá 6 löndum: Króatíu, Frakklandi, Íslandi, Ítalíu, Belgíu og Spáni.
Almenn markmið verkefnisins eru að: 
•    Stuðla að samkeppnishæfni og vexti þeirrar starfsemi sem nýtir sér óáþreifanlegan menningararf með þróun faglegrar hæfnilýsingar sem felur í sér umhverfis- og græna færni 
•    Efla hæfni fagfólks og frumkvöðla sem vinna með óáþreifanlegan menningararf með þróun námskeiða um græna og sjálfbærni þekkingu, hæfni og færni sem byggja á GreenComp-rammanum 
Markhóparnir eru: 
•    Fagfólk, sem vinnur með, annaðhvort tímabundið eða til frambúðar, óáþreifanlegan menningararf
•    Starfsmenn og samtök sem vinna með menningararf í sinni starfsemi
•    Einstaklingar sem geta nýtt sér óáþreifanlegan menningararf til að þróa eigin viðskiptahugmynd og frumkvöðlastarfsemi 
•    Fagfólk á sviði óáþreifanlegs menningarstarfs sem starfar hjá samtökum eða stofnunum, t.d. svæðisbundnum samtökum  
•    Fagfólk í starfsmenntun og starfsmenntastofnanir (sem bjóða upp á formlega og óformlega fræðslu) 

Á fjarfundinum fengu samstarfsaðilarnir tækifæri til að kynna sig og fyrsti hluti fundarins voru stuttar kynningar á þeim stofnunum sem munu vinna saman að þróun NICHE 2. Samstarfsaðilarnir ræddu nánari útfærslu á áætlun verkefnisins og skilgreindu nákvæmlega hlutverk og ábyrgð á framkvæmd allra verkefnisþátta. Eftir að hafa farið yfir öll helstu markmið og leiðir að þeim var merki verkefnisins valið og vefslóð fyrir heimasíðu verkefnisins sem verður birt innan tíðar.