2026-07-01
NICHE 2 verkefnið hefur lokið við Námsefni og hagnýt verkfæri NICHE 2, sem markar mikilvægan áfanga í framgangi verkefnisins. Þessi hluti er vinnupakki 3 og var unninn á tímabilinu frá ágúst 2025 til maí 2026 og skiptist í þrjá meginþætti: undirbúning, þróun námskrár og hagnýtra verkfæra NICHE 2 og þýðingu náms- og kennsluefnis yfir á tungumál samstarfsaðilanna sex.
Meginmarkmið vinnupakka 3 voru að staðfesta, í samstarfi við fulltrúa markhópa verkefnisins, fyrirhugaðan ramma námsárangurs og hæfniuppbyggingar NICHE 2 og efla getu þeirra sem starfa með óáþreifanlegan menningararf (ICH) til að takast á við tvíþætta umbreytingu grænna og stafrænna samfélagsbreytinga. Jafnframt var markmiðið að styðja ICH-aðila við að þróa sjálfbærari starfshætti, innleiða græn viðskiptalíkön og tileinka sér nýja þekkingu og hæfni sem styður sjálfbæra þróun.
Sem hluti af vinnupakka 3 hafa verið þróaðar sjö námslotur sem eru nú aðgengilegar á netinu. Þær eru ætlaðar fagfólki og stofnunum sem starfa á sviði óáþreifanlegs menningararfs og miða að því að efla þekkingu og hæfni á sviði sjálfbærni og grænna lausna. Hver námslota samanstendur af þremur kennslueiningum og fjallar um eftirfarandi viðfangsefni:
• Inngangur að grænum og sjálfbærum starfsháttum í óáþreifanlegum menningararfi
• Mat á umhverfisáhrifum fyrir óáþreifanlegs menningararfs
• Sjálfbær líkön fyrir óáþreifanlegan menningararf
• Vistvæn efni og starfshættir – ræktun sjálfbærrar óáþreifanlegrar menningararfleifðar
• Samfélagsleg þátttaka í óáþreifanlegum menningararfi
• Seigla gagnvart loftslagsbreytingum og óáþreifanlegur menningararfur
• Vöktun og skráning sjálfbærniframmistöðu
Í júní 2026 hófst jafnframt vinnupakki 4 (WP4) – Tilraunaprófanir og staðfesting NICHE 2. Þar verður nýja námskráin og hagnýtu verkfærin, sem þróuð voru og þýdd í vinnupakka 3, prófuð og metin með þátttöku 160 fulltrúa markhópa verkefnisins, þar á meðal þeirra sem starfa með óáþreifanlegan menningararf, sérfræðinga í starfsmenntun og annarra leiðbeinenda. Markmið tilraunaprófananna er að leggja mat á gæði og notagildi náms- og kennsluefnisins sem þróað var í vinnupakka 3.
Þann 16. júní 2026 héldu samstarfsaðilar NICHE 2 sinn þriðja alþjóðlega verkefnisfund á netinu. Á fundinum var farið yfir verkefnastjórnun, stjórnsýslu, fjárhagsáætlun og skýrslugjöf, eftirfylgni, gæðamál og mat, þróun opins námsvettvangs (Open Educational Resource Platform), miðlun verkefnisins og næstu skref í framkvæmd þess.
NICHE 2 er samstarfsverkefni innan Erasmus+ á sviði starfsmenntunar sem nýtur fjárstuðnings frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.Verkefnið sameinar sjö samstarfsaðila frá sex löndum – Króatíu, Frakklandi, Íslandi, Ítalíu, Belgíu og Spáni – og hefur það að markmiði að veita þeim sem starfa með óáþreifanlegan menningararf þá þekkingu, verkfæri og sérsniðnu fræðslu sem þau þurfa til að leiða græna og stafræna umbreytingu í samræmi við markmið um sjálfbæra þróun og stuðla að nýsköpun og sjálfbærni innan menningararfsgeirans.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu þess, www.nicheproject.eu, eða með því að hafa samband í gegnum netfangið nicheproject2@gmail.com.