#

LEIÐIR

01

LEIÐIR

NICHE 2 Leiðir: Að greina og hlúa að möguleikum frumkvöðlastarfs á sviði óáþreifanlegs menningararfs

Vinnupakki 2 (WP2) í NICHE 2 verkefninu snýr að því að greina og styðja við möguleika frumkvöðla, fagfólks og stofnana á sviði óáþreifanlegs menningararfs (ICH). Heimurinn stefnir í átt að grænum, stafrænum og sjálfbærum hagkerfum og WP2 gegnir lykilhlutverki í að samræma óefnislegan menningararf við umskipti eða umbreytingaleið sem kallast Tvöföld umbreyting (Twin Transition).

Markmið okkar

NICHE 2 Leiðir snýst um að efla getu geirans til að nýsköpunar, vaxtar og að leggja sitt af mörkum á markvissan hátt til sjálfbærrar þróunar. Helstu markmið okkar eru:

  • Greina þá hæfni og færni sem rekstraraðilar sem nýta sér óáþreifanlegan menningararf þurfa til að samræma starfsemi sína við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

  • Finna þjálfunarsvið sem styðja við umhverfisvænni starfshætti innan stofnana og fyrirtækja sem vinna með óáþreifanlegan menningararf.

  • Safna og greina dæmisögur sem sýna fram á sjálfbært og umhverfisvænt frumkvöðlastarf á sviði óáþreifanlegs menningararfs.

  • Benda á áskoranir sem hindra græn umskipti í ICH-geiranum — og leggja til aðferðir til að yfirstíga þær.

Sú þekking sem við munum afla mun hafa bein áhrif á námskrá verkefnisins og tryggja að hún sé viðeigandi, áhrifarík og byggð á raunverulegum þörfum markhópsin. Við munum einnig tengja skilgreindan færniskort við GreenComp ramma Evrópusambandsins, sem hjálpar fagfólki á sviði menningararfs að verða umhverfisvænna og betur undirbúið fyrir framtíðina.

Væntanlegar niðurstöður

  • Fjölþjóðleg þarfagreining sem varpar ljósi á þjálfunar- og þróunarþörf fagfólks á sviði óáþreifanlegs menningararfs.

  • Hæfnisrammi byggður á GreenComp sem skilgreinir lykilsvið fyrir þróun sjálfbærri færni.

  • Ríkulegt safn góðra starfsvenja, frásagna og nýstárlegra viðskiptalíkana fyrir óáþreifanlegan menningararf.

  • Bráðabirgðarammi fyrir nám og líkan fyrir uppbyggingu grænnar hæfni fyrir framtíðarþjálfun.

  • Fjöltyngd samantekt og opið aðgengi að efni sem er birt á NICHE2 vettvanginum.

Executive Summary

Download Executive Summary

GreenComp Matrix

Download GreenComp Matrix