#

FRÉTTIR

Óáþreifanlegur menningararfur og frumkvöðlastarf Fræðsluefni í NICHE verkefninu

2022-10-13

#

Markmið NICHE verkefnisins (Nurturing Intangible Cultural Heritage for Entrepreneurship) er að efla frumkvöðlastarf teng óáþreifanlegum menningararfi. Samstarfsaðilarnir í verkefninu hafa þróað fræðsluefni sem er notendavænt og nemendamiðað. Það er haft stutt og laggott, í átt að örþjálfun. Allt efnið er nú fáanlegt á íslensku auk ensku, ítölsku, spænsku, grísku og sænsku. Það er ókeypis og aðgengilegt fyrir alla á vef verkefnisins. 

Námskeiðin, dæmisögur og annað fræðsluefni: https://www.nicheproject.eu/trainings_is.php?lang=IS

•    Samskipti og samstarf með stafrænum miðlum
•    Miðlun þekkingar og jafningjanám
•    Lykilatriði við verndun óáþreifanlegs menningararfs
•    Þróun sýnar
•    Samskipti og þekkingarmiðlun
•    Framkvæmd
•    Fjármálafræðsla og stjórnendalæsi
•    Að vinna með óáþreifanlegan menningararf – gildi og þróun eigin hugmynda
•    Stafrænt læsi og gagnavernd fyrir fagaðila í óáþreifanlegum menningararfi
•    Entrecomp ramminn fyrir óáþreifanlegan menningararf

NICHE verkefnið er unnið með styrk frá Erasmus+, samstarfsáætlun ESB. Þetta er tveggja ára verkefni og hófst í nóvember 2020. Þátttakendur í verkefninu eru níu talsins og koma frá sjö löndum Evrópu; Íslandi, Belgíu, Grikklandi, Írlandi, Ítalíu, Spáni og Svíþjóð.